Litla-Garðs búið



                                                            


Um okkur!


11. maí 2008

Stefán Birgir Stefánsson



Stefán Birgir eða Biggi eins og hann er oftast kallaður er uppalin í Teigi ( í Hrafnagilshrepp hinum forna). Snemma heillaðist hann af hestunum en nokkrir hestar voru í Teigi. Foreldrar hans eru Þorgerður Jónsdóttir og Stefán Þórðarson og á hann 5 systkini. Litlar útreiðar voru stundaðar í Teigi, enn frá unga aldri sýndi Biggi mikinn áhuga á hestum og þegar þeir voru ekki til staðar kom hann þeim að í öllum mögulegum leikjum eins og að binda bræður sína út í garði og þar áttu þeir að bíða eftir honum "hestamanninum". Um fermingu lagði hannn land undir fót og reið einhesta fram á Melgerðismela um 16 km og og tók þátt í fyrstu keppninni sinni 250 m skeiði og hafnaði í 3ja sæti. Eftir það var ekki aftur snúið og má segja að Biggi hafi hellt sér út í hestamennskuna eftir það. Hann útskrifaðist frá Bændaskólanum Hólum 1986 og er félagi í FT. Í dag hefur Biggi mikla keppnisreynslu og hefur oftar en ekki verðið í fremstu sætum á mótum.

Líf hans og yndi er markviss ræktun kynbótahrossa og eiga þau Herdís konan hans orðið myndarlegt og spennandi stóð.


Herdís Ármannsdóttir

Herdís Ármannsdóttir ( konan hans Bigga) er uppalin í Árgerði ( Saurbæjarhrepp hinum forna) Foreldrar hennar eru Þórdís Sigurðardóttir og Ármann Magnússon og á hún 2 systkini. Þórdís og Ármann skildu þegar Herdís var 2ja ára og 5ára flytur hún með móður sinni og systkinum í Árgerði til Magna Kjartanssonar sem ól hana síðan upp eins og sitt eigið barn. Í Árgerði hefur alla tíð verið góður hestakostur og má segja að lífið hafi að mestu snúist um þá. Herdís keppti mikið á sínum unglingsárum en hætti því að mestu þegar hún hóf barneignir. Eiga þau Biggi 3 börn. Vinnur hún sem stuðningfulltrúi og um helgar skemmtir hún fólki með söng. Hún hóf búskap með Bigga 1990 fyrst í Teigi og 2002 keyptu þau Litla-Garð í Eyjafjarðarsveit . Þar er rekin myndarleg tamningastöð með 1 til 2 aðstoðarmönnum og markvissri ræktun að Árgerðis og Litla-Garðs hrossunum en bæirnir standa andspænis hvor öðrum, u.þ.b 1 km á milli.

Börnin.



Hafþór Magni Sólmundsson


Hafþór Magni Sólmundson fæddur1987 er sonur Herdísar og fóstursonur Bigga. Hefur hann alla tíð verið mikið fyrir hesta og riðið mikið út. Hann er búsettur í Reykjavík og er aðstoðar kjötstjóri í Nóatúni í Hamraborg. Hafþór er komin með hesta suður sér til ánægju og yndisauka.  Hann hefur tekið þó nokkurn þátt í keppni með ágætum árangri.

Nanna Lind Stefánsdóttir


Nanna Lind Stefánsdóttir Fædd 1994 er dóttir Bigga og Herdísar. Hefur hún alla tíð verið áhugasöm um hestana og tekið þátt í keppnum með mjög góðum árangri. Er hún mikill námshestur og æfir á pianó, þannig að hún notar sumrin aðallega til útreiða og tekur virkan þátt í öllum tamningum.

 Sindri Snær Stefánsson


Sindri Snær Stefánsson er litla örverpið á bænum, fæddur 2003. Sýnir hann öllum sveitastörfum mikinn áhuga og má helst ekki missa af neinu.

Á hann 1 hryssu sem heitir Vissa og státar hann sig einnig af hundinum Sám og kisunni Bjöllu






Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 100
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 38755
Samtals gestir: 8237
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 06:28:37

Vafraðu um

Litli-Garður & Árgerði

Nafn:

Fjölskyldan Litla-Garði & Árgerði

Farsími:

8961249 - 8931288

Staðsetning:

Eyjafjörður

Heimasími:

4631249 - 4631288

Um:

Stefán Birgir Stefánsson, Herdís Ármannsdóttir, Magni Kjartansson & Þórdís Sigurðardóttir.

Tenglar